Já gott fólk ég held að það sé komin tími á smá blogg hérna. Enda langt um liðið síðan eitthvað nýtt kom frá mér.
Stelpan er útskrifuð með frábærar einkunnir úr skólanum og byrjuð að vinna austur á fjörðum hjá Lögreglunni á Eskifirði og þangað verð ég allavega fram í sept. en ætla bara að sjá til eftir það. Kannski verður maður bara áfram eða þá kemur maður í bæinn og fer að vinna þar, en ég ætla að sjá til.
Mér líður ekkert smá vel hérna fyrir austan, starfsumhverfið frábært og ég tala nú ekki um að komast í sveitina heim til múttu og pabba inn á milli í vaktfríunum mínum. Enda get ég alveg viðurkennt að lundin er mikið léttari fyrir vikið og það er allt eitthvað í kringum mig svo dásamlegt.
Auðvitað er stelpan svo komin í Bootcamp 3x í viku og það er alveg að gera sig og alveg hreint frábært. Tímarnir byrja kl 06:00 á morgnana og eru í klukkutíma og svo plús teygjur svo maður er svona aðeins lengur, enda bara misjaft hvað fólk þarf og er lengi að teygja.
En eins og ég sagði hef ég verið heim í sveitinni líka og þar er maður mikið á ferðinni og að hjálpa til við að sinna búskapnum þegar maður er heima. Enda elska ég að vera heima þegar sauðburður er, þetta er mikil vinna en hrikalega gaman. Alveg ótrúlegt að þó svo að maður komi alveg búin á því eftir stressið í vinnunni og þá meina ég sérstaklega úr bænum að þá hlaðast batteríin að fullu þrátt fyrir mikla vinnu í sveitinni og of lítinn svefn. Alveg hreint frábært.
Eins og ég segi þá er ég útskrifuð í lögguskólanum og er bara mjög sátt við að vera búin enda var þetta ekki auðveldur áfangi að klára en þetta massaði stelpan
Útskriftin var 18 apríl en þetta var alveg frábær dagur í alla staði. Dagurinn byrjaði á því að fara til ljósmyndara með alla famelíuna sem gekk mjög vel og var alveg frábært en ég fór til Lýðs en þið getið séð heimasíðuna hans á lydur.is og þar er meira að segja hægt að sjá stelpuna á mynd
enda myndast ég svo vel... he he djók.
Svo var farið í kirkjuna þar sem við nemarnir þurftum að stilla upp áður en gestirnir mættu enda er þetta mjög flott afhöfn og ekki eins og aðrar útskriftir hjá öðrum skólum.
Eftir kirkjuathöfnina var brunað i skátaheimilið þar sem klárað var að leggja lokahönd á veitingarnar og gera allt reddí áður en gestirnir mættu. Veislan lukkaðist frábærlega og frábært að sjá alla þá sem mættu enda margir sem ég hef ekki haft tíma til að hitta lengi og æði að sjá allt fólkið, ég var hreinlega að springa úr monti eftir daginn enda var hann óaðfinnanlegur í alla staði.
Ég get nú heldur ekki sagt að hann hafi endað illa enda var djammað fram á rauða nótt en ég get sko alveg viðurkennt að ég var orðin ansi þreytt eftir allt saman enda spennufall í restina
Ég dreif mig svo bara austur og byrjaði að vinna á Eskifirði en ég náði að klára eina törn áður ég kom aftur í bæinn til að skella mér til Danmerkur í skólaferðalag í 9 daga sem lukkaðist frábærlega enda var veðrið alveg geggjað allan tíman og fór hitinn aldrei niður fyrir 15 stigin allan tímann, enda kom maður brúnn og sólbrunnin í bland heim og visakortið líka orðið heitt í hitanum þarna úti... he he he...
Stelpan dreif sig svo í að klára mótorhjólaprófið en ég hef aldrei á ævinni stýrt sjálf hjóli heldur bara verið hnakkaskraut
. Ég byrjaði á þriðjudeginum 13 apríl á verklegutímunum og tók prófið á föstudagsmorgninum 16 apríl og massaði prófið alveg eins og það lagði sig. Ég var villu laus í munnlega prófinu og því verklega
... ég er sko bara snilli
Ég keypti mér nú hjálm ef ég yrði nú svo heppin að einhver myndi bjóða mér á rúntinn hérna fyrir austan svo stelpan er til á rúntinn hvenær sem er
Ferðinni var svo heitið suður um daginn og íbúðin á Klausturstígnum tæmd og allt sett í geymslu, nema auðvitað það sem kom með mér hingað austur.
En ég er að spá í að snúa mér að vinnunni enda held ég að þetta sé komin alveg ágætur pistill hér í bili og ég skal reyna að fara vera dugleri að blogga svona til að láta fréttirnar berast af stelpunni
Elska ykkur öll rúsínubollur... tjá..